Snóker
Enginn skráður enn.

Knattborðsdeild Íslands
Skoraðu á hvern sem er, safnaðu stigum og klifraðu listann. Átta bolti, níu bolti, tíu bolti og snóker — enginn aldursflokkur. Aðeins karla- og kvennaflokkur, og blandaða deildin þar sem hver sem er getur orðið meistari.
Fyrsta keppnistímabilið er hafið
Stigatafla
Enginn skráður enn.
Enginn skráður enn.
Enginn skráður enn.
Enginn skráður enn.
Sigur gefur 3 stig og hver unninn rammi 1 stig til viðbótar. Leggirðu þann sem er ofar á listanum færðu 3 aukastig fyrir hvert tíu sæta bil sem skilur ykkur að. Aðeins ein opin áskorun á hvern keppanda í einu, 30 dagar til að klára hana.
Stafræn deild
Átta bolti, níu bolti og tíu bolti á sama tæki. Stigalisti greinarinnar sem þú velur birtist hér fyrir neðan borðið og er aðskilinn frá borðleikjunum.
Heilar eða röndóttar, svarta síðust.
Skráðu þig inn til að spila um stig — þú mátt æfa þig á borðinu hér fyrir neðan.
Heimamaður
Leikmaður 1
0
Gestur
Leikmaður 2
0
Brot: dragðu frá hvítu kúlunni og slepptu.
Fyrstur í 3 · Flokkur óráðinn
Stafrænn stigalisti
Sæki listann…
Á dagskrá
Greinarnar fjórar
Sjö og svarti. Klassíkin sem allir þekkja.
15 kúlur + hvíta9 ballHraðasta greinin. Lægsta kúla fyrst, níunni lokið hvenær sem er.
9 kúlur + hvíta10 ballNíu bolti án heppni. Allt kallað, ekkert gefins.
10 kúlur + hvítaSnookerStærsta borðið, lengsta taflið, 147 í fullkomnun.
22 kúlurFræðsla
Keppnisreglur greinanna fjögurra, þýddar og útskýrðar á íslensku. Pool-greinarnar fylgja reglubók WPA og snóker fylgir reglubók WPBSA. Lestu, lærðu — og mættu svo á borðið.
Þekktasta grein pool-heimsins. Annar keppandinn tekur heilar kúlur (1–7), hinn rendur (9–15), og sá vinnur rammann sem klárar sinn flokk og setur svo áttuna ofan í kallaðan vasa.
Lesa reglur9 ballHraðasta og sjónvarpsvænasta greinin. Snerta verður lægstu kúlu á borðinu fyrst, en hvaða kúla sem er má fara niður. Sá sem setur níuna löglega niður vinnur rammann — hvenær sem er.
Lesa reglur10 ballStrangari útgáfa af níu bolta og uppáhald keppnismanna, því hún fjarlægir heppnina: hvert einasta högg er kallað og engin óvænt samsetning gefur ramma.
Lesa reglurSnookerStærsta borðið og lengsta taflið. Stig eru unnin með því að setja kúlur niður í réttri röð — rauð, lituð, rauð, lituð — og hámarksbreikið er hið goðsagnakennda 147.
Lesa reglurViðureign hefst á „lagi“: báðir keppendur slá kúlu samtímis frá höfuðlínu í endabandið og til baka. Sá sem á kúlu sem stöðvast nær höfuðbandinu – án brots – velur hvor brýtur fyrst.
Í greinum sem krefjast kallaðra högga skal keppandi tilgreina kúlu og vasa nema höggið sé augljóst. Aðeins má kalla eina kúlu í einu; aðrar kúlur sem detta í löglegu kölluðu höggi teljast með. Í 8 bolta og 9 bolta má kalla „vörn“ (safety) og lýkur þá leikhlutanum óháð því hvað datt.
Þegar keppandi fær hvítu í hendi má leggja hana hvar sem er á borðinu (eða aftan við höfuðlínu þegar það á við) og færa hana frjálst þar til höggið er slegið.
Stökkhögg eru lögleg ef kjuðanum er lyft og hvítu slegið niður í borðið svo hún hrökkvi upp. Að moka eða vega kúluna upp er brot. Viljandi misslag (miscue) telst ósæmileg hegðun.
Leyfilegt er að nota brot- og stökkkjuða, framlengingar, allt að tvær brýr, hanska og krít. Bannað er með öllu að merkja miðunarlínur á borðið — það telst brot vegna ósæmilegrar hegðunar.
Fyrsta sæti gefur 30 stig, annað sæti 25, þriðja 24, fjórða 23 og svo koll af kolli, niður í 5 stig. Hver nýskráður keppandi fær 5 stig fyrir að skrá sig og birtast á listanum. Stigin gilda aðeins innan þeirrar greinar, flokks og deildar — þau færast ekki milli greina eða flokka.
Sigur gefur 3 stig, tap 0. Að auki fæst 1 stig fyrir hvern unninn ramma, svo naumt tap gegn sterkum andstæðingi skilar samt inneign.
Keppandi má senda eins margar áskoranir og hann vill, en aðeins eina opna áskorun í einu á hvern keppanda. Áskorun sem er samþykkt verður að fara fram innan 30 daga, annars fellur hún niður. Áskorandi velur grein og lengd (race to), andstæðingurinn velur stað.
Sigur á keppanda sem er ofar á listanum gefur 3 aukastig fyrir hvert 10 sæta bil sem skilur ykkur að. Það borgar sig að skora hátt.
Þýðingar og útdrættir hér eru til fræðslu. Komi upp ágreiningur á móti gildir upprunalegur texti reglubókanna og úrskurður dómara.